Færsluflokkur: Spil og leikir

Íþróttir

wifecarry.jpgÞað er eitthvað voðalega mikið verið að velta sér upp úr afleitu gengi fótboltalandsliðsins núna. Fyrst lá það fyrir landsliði Uzbekistan, sem þótti frekar niðurlægjandi þar sem ekki er mikil hefð fyrir fótbolta þar í landi og þurfti t.d að útskýra það í löngu máli fyrir markverði liðsins að hann gæti ekki láta móður sína færa sér heita hænsnasúpu meðan á leiknum stóð auk þess sem vodkadrykkja leikmanna var líka bönnuð inni á vellinum þrátt fyrir hávær mótmæli. Dropinn sem fyllti mælinn var þó tap fyrir 10. bekk Valhúsaskóla í æfingaleik sem átti að vera til þess að auka sjálfstraust leikmanna þó reyndin hafi orðið allt önnur og snautlegt tap staðreynd. Þjálfarinn sá þó einhverja ljósa punkta í leik liðsins eins og t.d að allir leikmenn hefðu hlaupið eitthvað í leiknum og sparkað í boltann og nokkrir jafnvel skallað þó það geti ruglað vandaðri hárgreiðslu og dýrir eyrnalokkar gætu týnst. Þessi viðleitni þótti samt ekki nóg og þjálfarinn ekki endurráðinn.

Ósköp er það samt óréttlátt að þjólfararæfillinn taki alltaf á sig sökina ef illa gengur. Hvernig væri að leikmennirnir gerðu það líka? Það ætti því ekki bara að reka þjálfarann heldur hreinlega allt liðið eins og það leggur sig. Síðan yrði flutt inn nýtt lið frá Póllandi sem kæmi í staðinn fyrir þetta arfaslaka lið sem við sitjum uppi með núna. Sé ekki alveg af hverju Pólverjar ættu ekki að geta mannað fótboltalandsliðið eins og öll önnur djobb á Íslandi sem ekki eru unnin við skrifborð. Þeir eru líka miklu betri í fótbolta en við og KSÍ þyrfti að borga þeim miklu minna fyrir að spila. Það væri jafnvel hægt að leggja fyrir til að geta einn góðan veðurdag látið kvennalandsliðið fá einhverja aura. Tvær flugur í einu höggi.

Annað sem hægt væri að gera væri að hætta hreinlega að spá í þetta fótboltabrölt þar sem við eigum hvort sem er aldrei möguleika og snúa okkur meira að jaðaríþróttum sem fáir stunda eins og handbolta. Þar liggja tvímælalust okkar sóknarfæri. Á heimsvísu erum við nokkuð framarlega í handbolta enda stunda þá íþrótt álíka margir og þeir sem leggja stund á sundballett. Þar erum við því að keppa á jafnréttisgrundvelli þegar höfðatalan sígilda er höfð til viðmiðunar

Það eru margar svona íþróttagreinar sem hægt væri að leggja stund á með góðum árangri. Þar má nefna að mér var nýlega bent á að það er haldið heimsmeistaramót í eltingaleik sem er íþrótt sem við öll kunnum og gætum eflaust staðið okkur vel í. Heimsmeistarakeppnin í að fleyta kerlingar var haldin nýlega í Skotlandi þar sem sigurvegarinn náði að fleyta kerlingar heila 65 metra. Þetta gæti hentað vel hér enda nóg af vatni. Skurðasund gæti líka hentað vel Íslenskum aðstæðum. Svo er líka keppt í túnfiskkasti, reiptogi, ánamaðkatýnslu, geitaveðreiðum, sláturkeppakasti, að rúlla ostum niður brekku og svo kannast allir við hið fræga eiginkonuhlaup. Möguleikarnir eru óþrjótandi.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband