Það kostar peninga að leika sér

ballinface.jpgÉg hef alltaf dáðst að fólki sem hefur atvinnu af því að leika sér að sama skapi og það er ekki laust við að ég öfundi það svolítið líka. Nú er ég ekki að tala um íslenska fjárfesta heldur íþróttamenn. Það er m.a.s fullt af fólki sem fær ógeðslega mikið af peningum fyrir að leika sér fyrir framan aðra.

Ástæðan fyrir því að ég er að tala um þetta er að núna er verið að stækka Laugardalsvöllinn þar sem jafnvel einhverntíma í ófyrirséðri farmtíð, ef við erum heppin og látum okkur dreyma, munu vinnast glæstir sigrar á knattspyrnuvellinum. Það eina sem skyggir á gleði kanttspyrnuforkólfanna er nánasarháttur og væl í einhverjum skrifstofublókum hjá borginni sem eru að gera veður út af smávægilegri umframeyðslu. Til að skýra þetta mál er hér stutt viðtal við Geirmund Þórsteinsson aðstoðar gjaldkera hjá KSÍ

Blm: Nú hefur vinna við stækkun Laugardalsvallar farið 400 milljónum fram úr áætlun, hvernig skýrið þið það?

GÞ: Ja þessi áætlun var nú gerð í fyrra og er klárlega barn síns tíma og margt hefur breyst síðan þá

Blm: Eins og hvað?

GÞ: Tja, fyrir það fyrst er núna árið 2008 sem var klárlega ekki í fyrra og svo er bara allt orðið svo ferlega dýrt!

Blm: Nú eigum við fótboltalandslið sem getur ekki neitt, er einhver ástæða til að vera að púkka undir það?

GÞ: Við hjá KSÍ lítum svo á að nú sé leiðin bara upp á við, sérstaklega eftir frækinn 2-0 sigur á landsliði Tonga í vináttulandsleik nýverið.

Blm: En nú mættu leikmenn Tonga í strápilsum og voru berfættir auk þess sem þeir voru aðeins 10 í liðinu þar sem fundust ekki fleiri í landinu sem kunnu fótbolta

GÞ: Alltaf skulið þið fréttamennirnir þurfa að gera lítið úr afrekum okkar fræknasta íþróttafólks á erlendri grundu! T.d komst íslenskur skíðamaður heilu og höldnu niður  brekku í stórsvigskeppni í Danmörku um daginn og ég minnist þess ekki að það hafi verið eytt mörgum orðum í það í fjölmiðlum

Blm: Þessi brekka var álíka brött og Arnarhóll

GÞ: Arnarhóll getur verið ansi brattur skal ég segja þér væni minn!

Blm: En aftur að vellinum, þykir það eðlilegt að helmingur áhorfendasvæðisins sé undirlagður undir VIP stúkur með 3 börum, lazy-boy stólum, prívat 4 stjörnu veitingastað, mini golfi, nuddi og sánaklefa?

GÞ: Við þurfum auðvitað að gera vel við okkar styrktaraðila, þessir bankakallar eru bara svo góðu vanir.

Blm: En hvað með að eyða 120 milljónum í að innrétta skrifstofur og fundaraðstöðu KSÍ þar sem er m.a 70 manna bíósalur, vísundaskinn á öllum stólum og koníaksstofa sem var sér innflutt í heilu lagi frá Búrgúndí?

GÞ: Við hjá KSÍ erum einfaldlega stórhuga og erum ekki að tjalda til einnar nætur

Blm: Og er það satt að það hafi gleymst að gera ráð fyrir kvennaklósettum og að blaðamannastúkan sé í gámi úti á bílastæði?

GÞ: Ja konan mín hefur nú nokkrum sinnum komið með mér á leiki og ég minnist þess ekki að hún hafi þurft að fara á klósettið

Blm: En nú hljóta að vera spilaðir einhverjir kvennalandsleikir enda íslenska kvennalandsliðið að gera góða hluti?

GÞ: Ha? Hvaða kvennalandslið?

Blm: Í fótbolta

GÞ: Nú, er það til?! Ja ekki er öll vitleysan eins segi ég nú bara! Áður en maður veit af eru þessar kellingar farnar að keyra vörubíla eða skipta sér af stjórnmálum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson

Alveg hárrétt. Þó ég sé nú alveg á því að það megi gjarnan eiða peningum í íþróttamannvirki þá eru einfaldlega alltof miklir peningar í íþróttum. Hversu margir af þessum íþróttamönnum sem hamast sem mest og fá óskiljanlegar fúlgur fjár fyrir, skyldu skella sér í grindahlaup um nírætt eins og sá finnski í höllinni um daginn? Og þvílík della að hafa þessar VIP stúkur. Fyrir hvern? Gott að hafa góðar stúkur fyrir fréttamennina svo þeir geti sinn sínu starfi en fyrir aðra? Nei það er snobb og flottræfilsháttur. Og til hvers eru VIP svæði í áhorfendasvæðum yfirleitt? DELLA!

Grétar Einarsson

Grétar Einarsson og Óskar Ásgeir Ástþórsson , 6.3.2008 kl. 21:41

2 Smámynd: Kolgrima

Það er geggjað að vera í VIP stúku og fá jarðaber í kampavíni - ókeypis

Frábær pistill, Grumphildur!

Kolgrima, 6.3.2008 kl. 23:39

3 identicon

Ekki ertu að fara fram á að KONUR búi við sömu aðstöðu og karlar í íþrottum?Fásinna !!!!!!!!!

Monopoly (IP-tala skráð) 8.3.2008 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband